15.10.1943
Sameinað þing: 19. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í D-deild Alþingistíðinda. (2292)

20. mál, byggðasími í Álftaveri

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Það kom skýrt fram í n., að ekki væri ætlazt til, að framlög í þessu skyni yrðu til þess að draga neitt úr framlögum til byggðasíma annars staðar á landinu. Þessu vildi ég fá slegið föstu og ber fram brtt. í þá átt á þskj. 143, þar sem þetta er skýrt tekið fram. Vona ég, að flm. till. geti fallizt á þessa breyt., og legg til, að hún verði samþykkt.