29.11.1943
Neðri deild: 55. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í C-deild Alþingistíðinda. (2350)

31. mál, útsvör

Emil Jónsson:

Mér finnst, að þetta frv. og ákvæði þess ætti að afgreiða með öðrum hliðstæðum og skyldum ákvæðum skattal., og þó að ég út af fyrir sig gæti hugsað mér að vera með þessu ákvæði, sem í frv. er, þá fer það nokkuð eftir því, hvernig önnur skyld ákvæði þessum verða afgreidd, og greiði ég því ekki atkvæði.