11.11.1943
Neðri deild: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í C-deild Alþingistíðinda. (2507)

128. mál, iðnskólar

Páll Þorsteinsson:

Ég þakka hv. allshn. fyrir hennar góðu meðferð og tillögur. Breyt. þær, sem hún leggur til, að gerðar verði, tel ég sjálfsagðar. Á þá fyrri hafði ég bent hér, þegar ég reifaði málið.

Síðari brtt., um heimild handa ríkisstj. til fjárútláta í þessu skyni, leggur aðeins ríkari áherzlu á framgang málsins.