06.10.1943
Sameinað þing: 17. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 88 í D-deild Alþingistíðinda. (2543)
67. mál, vegagerð yfir Hellisheiði og Svínahraun
Páll Zóphóníasson:
Það er búið að ræða þetta nokkuð. Þó vildi ég minnast á fáein atriði, vildi fá svör um þau.
Fimmtán þm. standa að till., og eru fimm þeirra fulltrúar kjördæma austan fjalls. Þeir skilja þörfina, sem er á vetrarfærum vegi, þar sem 20—30 tonn eru daglega flutt að austan og austur. Svo kemur einn þm., sem vildi kannske vera þar fulltrúi, en er þm. alls landsins. En hinir 9 eru reykvískir fulltrúar, og einn úr hópi þeirra hefur þessa dagana haldið því fastlega fram, að allir þessir mjólkurflutningar austan yfir fjall væru hreinasti óþarfi, mjólkina ætti að framleiða hér í bænum og næsta nágrenni. Mig langar til að fá grg. fyrir því, hvort allir þessir fulltrúar Reykjavíkur hafa þá sömu skoðun. Og til hvers á þá vegurinn að vera? Á að gera hann til þess að lúxusbílaeigendur hér í Reykjavík geti frekar vikið sér á honum? Eða hafa þeir eina skoðunina í dag og aðra á morgun? Það skyldi þó aldrei vera, að þeir væru allir einhvers konar tvífarar í þessum málum?
Þá langar mig til að vita, hvað hv. 2. þm. Árn. (EE) átti við, þegar hann talaði um, að kjarni landsmanna byggi í Reykjavík, svo að réttur þeirra væri, að manni skildist, meiri en annarra landsmanna. Hvaða „kjarni“ er það, sem á þannig kröfu til að fá óskum sínum fullnægt fyrr og sennilega betur en aðrir? Þá vildi ég spyrja, hvort ekki hefðu áður verið gerðar ýmsar athuganir og áætlanir, er varða þessa leið og aðrar, sem um er að velja. Mundi ekki þurfa frekari samanburð á þessum leiðum? Ég held það sé ekki hyggilegt að líta aðeins á þennan eina möguleika, steyptan veg yfir Hellisheiði, því að hann sé dálítið vafasamur og aðrir komi eins til greina. — Um þörf þessa máls þarf ekki að deila, ekki svo að skilja, að verið sé að uppfylla þörf einhvers kjarna þjóðarinnar, heldur þörf, sem stafar af því, hvar mannfjöldinn er mestur og flutningaþörfin, — en hún nemur álíka mörgum tonnum þarna daglega og kg., sem flytja þarf ýmsar útkjálkaleiðir.