15.12.1943
Neðri deild: 64. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í C-deild Alþingistíðinda. (2582)

133. mál, raforkusjóður

Einar Olgeirsson:

Með því að ég álít, að það sé nauðsynlegra, ef við leggjum í að taka svona stórt lán nú, að við notum það til annars en þessa, og með því að ég tel óviturlegt að taka stórlán til þess að láta það í sjóð og eyðileggja í rekstrartapi upphæð, sem nemur verulegum hluta af því, sem ríkið leggur fram til raforkusjóðs, segi ég nei.