15.12.1943
Efri deild: 67. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í C-deild Alþingistíðinda. (2634)
139. mál, stríðsgróðaskattur
Bernharð Stefánsson:
Hafi það verið hið sama og að drepa næsta mál á undan (frv. um laun háskólakennara) að vísa því til n., þá á það ekki síður við um þetta mál. Ég skal ekki segja, hvort undirbúningur málsins, sem var á dagskrá hér á undan, og upplýsingar þær, sem fyrir liggja um það, eru eins rækilegar og um þetta mál. Ég vil leyfa mér að benda á það, að mál þetta fékk rækilega meðferð í fjhn. Nd. og n. var sammála um það og lagði til, að það yrði afgr. í því formi, sem það hefur nú. Þeim hv. dm., sem kynnu að líta svo á, að málið lægi ekki nógu ljóst fyrir, vil ég benda á, að allýtarleg fylgiskjöl eru með nál. Nd., sem mikilsverðar upplýsingar eru í. Að vísu er engin till. komin fram um að vísa málinu til n. og þetta því e. t. v. óþarfi, en ef till. kemur fram, vil ég fara fram á, að hv. þm. hugsi sig um, áður en þeir samþ. hana, því að þá brygði að minnsta kosti til beggja vona um það, hvort málið nær fram að ganga á þessu þ., en það væri illt, ef þetta mál dagaði uppi.