06.09.1943
Efri deild: 10. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í B-deild Alþingistíðinda. (268)

30. mál, einkasala á tóbaki

Lárus Jóhannesson:

Herra forseti. Þar sem hæstv. ráðh. hefur lýst yfir því, að hann sé ekki alveg viss um, hvort stj. hafi heimild til að nota án frekara samþykkis þingsins þann tekjuauka, sem hér um ræðir, og sérstaklega þar sem hann vildi ekki gefa nein ákveðin loforð í þessu efni, leyfi ég mér að stinga upp á, að þetta frv. fái venjulega afgreiðslu og verði vísað til fjhn.