12.11.1943
Sameinað þing: 29. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í D-deild Alþingistíðinda. (2704)
125. mál, rafmagnsveita Reykjaness
Sveinbjörn Högnason:
Þar sem ég tel, að komið hafi fram ótrúleg meinfýsi í garð annarra héraða og þá sérstaklega í garð þess héraðs, sem hér á hlut að máli, þar sem því er haldið fram, að þótt efni muni verða til til meiri framkvæmda en frv. fer fram á, þá geti flm. ekki unnað því þess, þá vil ég ekki taka þátt í atkvgr. hér að lútandi.
Till. vísað til síðari umr. með 34 shlj. atkv., með fyrirsögninni:
Till. til þál. um efniskaup til rafmagnsveitu Reykjaness.