12.11.1943
Sameinað þing: 30. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í D-deild Alþingistíðinda. (2707)

125. mál, rafmagnsveita Reykjaness

Eiríkur Einarsson:

Ég tók fram við atkvgr. nýlega, að ég tæki brtt. mína á þskj. 275 aftur til síðari umr. Ég vil ekki tefja afgr. málsins fremur en orðið er. Brtt. gæti vel staðizt til að skeytast aftan við aðaltill., eins og hún stendur nú, en þrátt fyrir þörf á því og sanngirni að fá samþ. till. mína, treysti ég mér ekki til að halda henni til streitu. Þó hef ég samið hana — ekki til leiks, heldur í fullri alvöru. Því tek ég till. mína til baka, svo að till. þessi nái fram að ganga og það, sem felst í minni till., verði samþ. í öðru formi.