06.12.1943
Neðri deild: 59. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 492 í C-deild Alþingistíðinda. (2806)
159. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Sigurður E. Hlíðar:
Herra forseti. 1. flm. brtt. á þskj. 473 er nú ekki viðstaddur frekar en síðast, þegar málið var á dagskrá, og þó að ég sé síðastur flm. og ætlaði ekki að ganga þar fram fyrir skjöldu, vildi ég svara andmælum, sem beint var að brtt. af hv. þm. Vestm. (JJós). Hann taldi eðlilegra, að skattstjóri væri formaður niðurjöfnunarn. En við fjórir, sem stöndum að brtt., teljum það nauðsyn fyrir bæina að ráða formanni hennar, það sé bæjunum hættulegt að taka oddamanninn og þar með valdið í niðurjöfnunarn. af þeim meiri hl. bæjarstjórnar, sem ber á hverjum tíma ábyrgðina á stjórn bæjarins. Fordæmi í þessu máli var gefið í Rvík, en horfið frá því aftur. Meiri hl. bæjarstjórna skapast náttúrlega af ýmsum ástæðum, en þar kemur fram kjósendavilji, sem treysta verður á, og það verður farsælast, að vald og ábyrgð séu í höndum bæjarstjórnar. Ég tel þetta ekki óhyggilegt og tel, að með því móti sé miklu betur tryggt, að kunnugur maður verði oddamaður í niðurjöfnunarn. en ef einhver maður verður skipaður af ríkisstj., a. m. k. í fyrstu, ókunnugur. Ég mæli því með þessari brtt. og get ekki fellt mig við það, sem hv. þm. Vestm. hefur haldið fram viðvíkjandi þessu atriði.