09.12.1943
Neðri deild: 60. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í C-deild Alþingistíðinda. (2909)
183. mál, háskólakennarar
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þetta frv. er flutt af menntmn. og fer fram á þá breyt., að tveir skuli vera prófessorar í viðskiptafræðum.
Viðskiptaháskólinn var stofnaður fyrir fimm árum og var sameinaður lagadeild háskólans með l. nr. 78 27. júní 1941. Til kennslu í viðskiptafræðum var skipaður einn dócent 1941, og ári síðar var skipaður annar dócent til kennslu í sömu grein. En af því að ekki eru til lagaákvæði um þetta, þykir sjálfsagt að lögfesta embættin. Það hefur engin aukin útgjöld í för með sér, og vænti ég, að málinu verði vísað til 2. umr. að þessari lokinni.