14.10.1943
Efri deild: 34. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í C-deild Alþingistíðinda. (2936)

3. mál, eignaraukaskattur

Haraldur Guðmundsson:

Ég vil aðeins endurtaka það, sem ég sagði áðan, að málið hefur ekki einu sinni enn þá gengið gegnum 1. umr. í d. En að sjálfsögðu þyrfti ekki að bíða eftir áliti mþn. til þess að hægt væri að ljúka 1. umr. og vísa málinu til n. Að öðru leyti nægja mér svör hæstv. forseta.