02.11.1943
Sameinað þing: 25. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í B-deild Alþingistíðinda. (30)

27. mál, fjárlög 1944

Forseti (GSv) :

Ég vil og leyfa mér að leita afbrigða fyrir því, að hinni almennu umr. um fjárlagafrv., sem samkv. þingsköpum á að fara fram nú, verði frestað til 2. umr. og verði henni þá útvarpað, og verður hún þá með sama hætti og síðast, þannig að hún færi fram eftir að atkvgr. um einstakar gr. frv. og brtt. er lokið, en áður en atkvgr. um sj álft frv. fer fram, og getur það væntanlega orðið fyrir næstu helgi.