13.09.1943
Efri deild: 16. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í C-deild Alþingistíðinda. (3018)
37. mál, alþýðutryggingar
Haraldur Guðmundsson:
Út af orðum hv síðasta ræðumanns vil ég segja það, að það er til athugunar, hvort hafa skuli lífeyrissjóðsgjald stighækkandi eða ekki. Að minni hyggju stendur það nokkuð í sambandi við stighækkun á öðrum sköttum, hvað mikið þarf að leggja á af þeim samanlögðum, hve hundraðstala þeirra kemst hátt.