26.11.1943
Sameinað þing: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í D-deild Alþingistíðinda. (3049)

13. mál, virkjun Fljótaár

Jörundur Brynjólfsson:

Eins og hv. þm. muna, þá var ég á móti því, að þessi ábyrgð væri veitt og ráðizt í þessar framkvæmdir, en úr því að Alþ. hefur samt sem áður samþ. þessi lög, þá þykir mér tilhlýðilegt, að sá meiri hl. standi við fyrirheit sín, og ég mun ekki standa á móti því fyrir mitt leyti og greiði því ekki atkvæði.