20.10.1943
Efri deild: 36. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (305)

58. mál, birting laga og stjórnvaldserinda

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég gat um það við 2. umr., að verið gæti, að ég bæri fram brtt. þá, sem hér er um að ræða. Hæstv. dómsmrh. tjáði sig þá ekki vera á móti henni. Enda er eftir atvikum óviðfelldið að telja lög með stjórnvaldaerindum. Ég held, að það sé ekki samkvæmt almennu máli, svo að þessi breyt. sýnist vera sjálfsögð.