13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í C-deild Alþingistíðinda. (3101)
42. mál, dýrtíðarráðstafanir
Frsm. meiri hl. (Jakob Möller):
Eins og nú er komið málum, þar eð hæstv. ríkisstj. hefur lagt fram frv. til þess að afla fjár til framkvæmda á dýrtíðarráðstöfunum, þá tel ég rétt, að þetta mál verði tekið af dagskrá, unz séð verður, hvað gerist í þessu, og óska ég eftir, að svo verði gert.