13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í C-deild Alþingistíðinda. (3107)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svar hans. Það tók af öll tvímæli um það, að verði málinu nú frestað, þá muni vera orðið samkomulag um það milli Framsfl. og Sjálfstfl. að afgreiða ekki þetta mál. Ég skora því á hæstv. forseta og það því fremur sem hann finnur til þess, að þetta mál hefur þegar dregizt mjög á langinn, að hann fresti nú ekki umr., og verði engar umr. um málið, þá lýsi hann umr. slitið. (JakM: Ég fellst á þetta).