13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 634 í C-deild Alþingistíðinda. (3109)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JörB):

Mér skilst nú, að ef meiri hl. hv. d. er þeirrar skoðunar, að fram kæmu brtt., þá er eðlilegt að slíta ekki umr. En þar sem menn greinir svo mjög á um þetta mál hér í hv. d. og búið er að bíða eftir því lengi, að málið kæmi úr n., og ég hef einnig orðið var við till. um að fresta því að taka málið fyrir til umr., þá vil ég láta hv. þd. skera úr því, hvort hún vill taka málið til umr. nú eða ekki.