13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í C-deild Alþingistíðinda. (3110)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Hæstv. forseti hefur hingað til haft sitt eigið vald og sín eigin ráð um þetta mál, og ég skora á hann að halda því áfram. Hann hefur ekki fundið ástæðu til að bera þetta atriði undir þessa hv. d. fram til þessa. Og hvers vegna skyldi vera meiri ástæða til þess nú? Ég vil því enn einu sinni skora á hæstv. forseta að láta engar breyttar kringumstæður hafa áhrif á forsetavald sitt.