16.12.1943
Neðri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 637 í C-deild Alþingistíðinda. (3120)

42. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JörB):

Eins og ég áður lét í ljós, er ég ekki mótfallinn því, að málið verði tekið fyrir. En ástæðan til þess, að ekki er hægt að taka það á dagskrá nú, er sú, að fundur verður í Sþ. í nótt og Alþingi verður slitið á morgun. Auk þess hefur deildin áður fellt tili. um að taka mál þetta á dagskrá.