28.10.1943
Efri deild: 41. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í C-deild Alþingistíðinda. (3140)

123. mál, náttúrurannsóknir

Bjarni Benediktsson:

Þó að hv. þm. S.-Þ. hafi glaðzt yfir fyrirheiti hv. 5. þm. Reykv., að fulltrúi sósíalista skyldi hverfa úr ráðinu, er ekki víst, að það gleðji alla þm. Sjálfstfl. hefur ekki enn tilnefnt mann, af því að hann hélt, að það ætti annaðhvort að leggja ráðið niður eða gerbreyta skipun þess. Það eru líkur fyrir þingmeirihluta fyrir breyt.