28.10.1943
Efri deild: 41. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í C-deild Alþingistíðinda. (3147)

123. mál, náttúrurannsóknir

Hermann Jónasson. Herra forseti. Ég ætla ekki að halda áfram að karpa um þetta mál, en viðvíkjandi því, sem haldið er fram um Björn Sigurðsson, að hann hafi ekki viljað starfa undir yfirstjórn rannsóknaráðs, þá er óviðkunnanlegt að halda hér áfram deilu um þetta, þar sem hægt er að tala við manninn sjálfan í síma 3233, þar sem hann er við vinnu sína, og ég talaði sjálfur við hann nú rétt áðan.