03.09.1943
Sameinað þing: 10. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í B-deild Alþingistíðinda. (316)

15. mál, fjáraukalög 1940

Forsrh. (Björn Þórðarson) :

Herra forseti. Ég bjóst ekki við að taka til máls um þetta mál í þetta skipti, en hæstv. fjmrh. hefur af einhverjum ástæðum ekki getað sótt fund nú, og þess vegna stend ég upp.

Ég býst við, að um frv., eins og það liggur fyrir, sé fátt að segja, en í ástæðum fyrir því er vísað til ríkisreikninganna frá 1940 með aths. yfirskoðunarmanna og svörum við þeim, og get ég ekki annað á þessu stigi málsins en vísað til þess og óskað þess, að frv. verði veitt sú afgr., sem venjuleg er, að það fari til fjvn. til athugunar.