26.11.1943
Sameinað þing: 37. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í D-deild Alþingistíðinda. (3198)

111. mál, línurit yfir vegi

Páli Zóphóníasson:

Ég tel það, sem þessi till. fer fram á, í sjálfu sér þarft, en hún gengur ekki nógu langt og nær því ekki tilgangi sínum. Það þarf að liggja fyrir, hvað margir bæir í hverri sýslu hafa þá aðstöðu að geta flutt að sér og frá á bíl, á kerru eða bara á klökkum. Með því fæst samanburður á, hvernig sýslurnar eru veglagðar, en ekki, þó að lengd veganna nú sé þekkt, því að sýslubúar hafa lítið gagn vega, sem liggja gegnum sýslurnar, en fram hjá bæjum. Till. þarf að vera fyllri en hún er hér, og legg ég til, að henni verði vísað til n.