18.11.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í D-deild Alþingistíðinda. (3221)

116. mál, rafveita Húsavíkur

Flm. (Jónas Jónsson):

Þetta mál hefur verið hér til umr. í þinginu áður, en nú stendur þannig á, að Húsvíkingar hafa tryggt sér með samkomulagi við Akureyri 1000 hestöfl, og er verið að setja vélarnar niður, en vantar línu til Húsavíkur. Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, en óska, að því verði vísað til fjvn.