15.12.1943
Sameinað þing: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í D-deild Alþingistíðinda. (3317)

184. mál, uppbót á þingfararkaupi

Sigurður Kristjánsson:

Ég tel sjálfsagt, að forseti beri þessa brtt. undir atkv. En ég get lýst yfir því strax, að ég er sama sinnis og hv. 3. þm. Reykv. benti á, og get ég alls ekki tekið þátt í að meta þetta. Mér dettur það ekki í hug og segi nei við brtt.