16.12.1943
Sameinað þing: 44. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í D-deild Alþingistíðinda. (3352)

191. mál, lækka verð á vörum innan lands

Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessar umr. mikið. Ég geri ráð fyrir því, eftir flm. að dæma, að að þessari þáltill. standi tveir stærstu flokkar Alþ. og því sé tryggt, að hún muni ná fram að ganga. Ég vil aðeins lýsa yfir af hálfu Alþfl., að hann er andvígur þessari till., og það er af því, að hann telur, að það hafi verið haldið þannig á þessum dýrtíðarmálum og öllum þeim málum, sem þau varðar, að hann telur sér ekki fært að mæla með frekari útgjöldum til niðurborgana, og eftir þessa afgreiðslu á fjárl. þá sér Alþfl. sér því alls ekki fært að greiða atkv. með þessari þáltill.