16.12.1943
Sameinað þing: 45. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í D-deild Alþingistíðinda. (3375)

191. mál, lækka verð á vörum innan lands

Forseti (GSv):

Ég vil geta þess, sem þó hefði ekki átt að þurfa við jafnskýran mann og hv. 8. þm. Reykv., að þegar úrskurðað er um þingsköp, þá er það um formsatriði, það er ekki um annað að ræða en formsatriði, og hv. þm. verður að gera greinarmun á því, hvað eru þingsköp og hvað efni málsins, þegar rætt er um það, hversu veigamikið málið er.