16.12.1943
Sameinað þing: 45. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í D-deild Alþingistíðinda. (3385)

103. mál, radioviti og miðunarstöð

Frsm. (Finnur Jónsson) :

Herra forseti. Fjvn. hefur fyllilega viðurkennt, að þörf sé á miðunarstöð í Vestmannaeyjum. Hins vegar hefur hún leitað álits póst- og símamálastjóra, og þar eð þetta hefur orðið fyrir þeim breyt., að hann telur, að ný athugun verði að fara fram, leggjum við til, að tillgr. orðist eins og greint er á þskj. 575.