18.11.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í D-deild Alþingistíðinda. (3445)
137. mál, söltun og niðursuða síldar
Forseti (GSv):
Það getur komið til mála að fresta um stund þessari umr. Það eru þrjú mál síðar á dagskránni, sem ég vildi, að komið væri umræðulítið til n.
Ég skal geta þess út af uppástungu hv. frsm. um, að n., sem athugaði málið, yrði utanrmn., að hún er að vísu n. í Sþ. og ekki er hægt að banna, ef þm. vilja, að vísa málinu til hennar, en málið er atvinnu- eða fjárhagsmál, og má segja, að það kæmi til mála með tvær n. að fara með þetta mál, og þó einkanlega fjvn. (EOl: Má ég skýra frá því, að utanrh. taldi þetta heyra undir samvinnu við útlönd). Því ber ekki að neita, ef þm. vilja, að málið fari til utanrmn., að þá er það vel hugsanlegt, því að þm. eru í henni, þótt hún sé bæði láðs og lagar dýr.