18.11.1943
Sameinað þing: 32. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í D-deild Alþingistíðinda. (3448)

137. mál, söltun og niðursuða síldar

Einar Olgeirsson:

Þar sem upplýst er í umr., að enginn möguleiki er á framkvæmd þessa öðruvísi en í sambandi við utanríkisþjónustuna, og þar sem utanrmn. hefur einnig haft með þessi mál að gera og mun halda áfram að gera, álít ég langeðlilegast að vísa málinu til hennar og segi því já.