16.12.1943
Sameinað þing: 45. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 322 í D-deild Alþingistíðinda. (3452)
137. mál, söltun og niðursuða síldar
Einar Olgeirsson:
Ég vil þakka hv. allshn. fyrir atbeina hennar í þessu máli, þótt ég sé henni ekki alveg sammála um afgreiðslu þess. Eins vil ég láta það álit mitt í ljós, að ríkisstj. muni hafa hug á málinu, þótt okkur greini á um framkvæmdaratriði. Ríkisstj. virðist vilja taka málið í sínar hendur, en ég vil, að n. verði skipuð í málinu. Þetta er allur ágreiningurinn. Ég skal svo ekki segja meira, svo að málið tefjist ekki af þeim sökum.