15.12.1943
Sameinað þing: 43. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 343 í D-deild Alþingistíðinda. (3483)

143. mál, þjóðleikhúsið

Barði Guðmundsson:

Herra forseti. Ég bjóst við því, að hæstv. forseti mundi taka nú á dagskrá þáltill. á þskj. 305, sem var hér til fyrri umr. í gær.

Þessi till. var lögð fram 2. nóv. og var tekin á dagskrá viku síðar. Síðan hefur hún af og til verið á dagskrá, en hefur ekki verið tekin fyrir til umr. fyrr en í gær. Það kom þá greinilega fram, að mikill meiri hl. Sþ. var með þessari till. og vildi láta hana fá skjóta afgreiðslu. Ég vildi því mælast til þess við hæstv. forseta, ef hann sæi sér ekki fært að taka þessa till. nú á dagskrá, að hann taki hana þá fyrir á næsta fundi.