15.10.1943
Sameinað þing: 19. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í D-deild Alþingistíðinda. (3503)

50. mál, gagnfræðanám

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson) :

Ég vil taka það fram, að það er síður en svo af andúð gegn efni till., að n. fannst rökst. dagskráin vera réttara form. Ég get sagt fyrir mitt leyti, að ég álít það einmitt höfuðþörf í skólamálum okkar nú að koma á jafnrétti um gagnfræðapróf. En það er formlega réttara, að Alþ. taki ekki ákvarðanir um einstök atriði skólakerfisins fyrr en álit mþn. liggur fyrir.