13.12.1943
Neðri deild: 63. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 385 í D-deild Alþingistíðinda. (3534)

156. mál, rannsóknarnefnd vegna eyðileggingar á kjöti og öðrum neyzluvörum

Sveinbjörn Högnason:

Hv. 2. þm. Rang. gat ekki fallizt á, að þessar tvær till. væru líkar. En ég vil benda á, að eins og till. í mjólkurmálinu var fram borin af hv. þm. Snæf. (GTh), þá var hún svipaðs eðlis og þessi till., og með þeirri till. var allur Sósfl. og nokkur hluti Sjálfstfl. Það er einungis að formi til, sem þær eru ólíkar.