03.12.1943
Sameinað þing: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 397 í D-deild Alþingistíðinda. (3566)

72. mál, bygging ljós-, hljóð- og radiovita á Seley við Reyðarfjörð og hljóðvita við Berufjörð

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson):

Ég hef ekki umboð fjvn. til að segja neitt um það, hvernig hún mundi taka á brtt. þessari. Ég man ekki eftir, að þessu væri hreyft á fundi í n., enda ber rökstudda dagskráin það með sér, að hún er miðuð við hina upphaflegu till. og að ekki megi taka málið úr höndum vitamálan. Enda segir hv. frsm. minni hl. nú, að hann sé horfinn frá aðaltill. sinni í málinu, þ. e. því máli, sem lá fyrir fjvn. Ég tel því, að rétt sé, að málið fari til n. aftur.