03.12.1943
Sameinað þing: 38. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í D-deild Alþingistíðinda. (3645)
109. mál, vinnutími í vaga- og brúavinnu
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Ég hafði á fundi, þegar þetta mál var til umr. áður, kvatt mér hljóðs, en gat þá ekki talað, þar sem ekki vannst tími í það skiptið til að ræða málið. En þar sem ég sé, að lítill kostur er að koma málinu áfram, ef deilur hefjast á ný, en ég vil ekki tefja málið, þá óska ég, að því verði vísað til allshn.