15.04.1943
Efri deild: 1. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (3806)

Kosning forseta og skrifara

Haraldur Guðmundsson:

Ég get upplýst það um 1. þm. Eyf., að hjá honum var aðeins um misskilning að ræða. Hann stóð í þeirri meiningu, að samkomulag hefði verið um að kjósa Alþýðuflokksmann fyrir 1. varaforseta.