15.04.1943
Sameinað þing: 1. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (3807)

Ríkisstjóri setur þingið

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til alþingishússins, fundarsals neðri deildar. Þessir þingmenn voru til þings komnir:

1. Áki Jakobsson, þm. Siglf.

2. Ásgeir Ásgeirsson, þm. V.-Ísf.

3. Barði Guðmundsson, 5. landsk. þm.

4. Bernharð Stefánsson, 1. þm. Eyf.

5. Bjarni Ásgeirsson, þm. Mýr.

6. Bjarni Benediktsson, 6. þm. Reykv.

7. Brynjólfur Bjarnason, 5. þm. Reykv.

8. Einar Olgeirsson, 2. þm. Reykv.

9. Eiríkur Einarsson, 2. þm. Árn.

10. Emil Jónsson, þm. Hafnf.

11. Eysteinn Jónsson, 2. þm. S.-M.

12. Finnur Jónsson, þm. Ísaf.

13. Garðar Þorsteinsson, 2. þm. Eyf.

14. Gísli Guðmundsson, þm. N.-Þ.

15. Gísli Jónsson, þm. Barð.

16. Gísli Sveinsson, 10. landsk. þm.

17. Guðmundur I. Guðmundsson, 9. landsk. þm.

18. Gunnar Thoroddsen, þm. Snæf.

19. Haraldur Guðmundsson, 3. landsk. þm.

20. Helgi Jónasson, 1. þm. Rang.

21. Hermann Jónasson, þm. Str.

22. Ingólfur Jónsson, 2. þm. Rang.

23. Ingvar Pálmason, 1. þm. S.-M.

24. Jakob Möller, 3. þm. Reykv.

25. Jóhann Jósefsson, þm. Vestm.

26. Jón Pálmason, þm. A.-Húnv.

27. Jón Sigurðsson, 2. þm. Skagf.

28. Jónas Jónsson, þm. S.-Þ.

29. Jörundur Brynjólfsson, 1. þm. Árn.

30. Kristinn E. Andrésson, 7. landsk. þm.

31. Lárus Jóhannesson, þm. Seyðf.

32. Lúðvík Jósefsson, 6. landsk. þm.

33. Magnús Jónsson, 1. þm. Reykv.

34. Ólafur Thors, þm. G.-K.

35. Páll Hermannsson, 1. þm. N.-M.

36. Páll Zóphóníasson, 2. þm. N.-M.

37. Páll Þorsteinsson, þm. A.-Sk.

38. Pétur Magnússon, 8. landsk. þm.

39. Pétur Ottesen, þm. Borgf.

40. Sigfús Sigurhjartarson, 8. þm. Reykv.

41. Sigurður Bjarnason, þm. N.-Ísf.

42. Sigurður Guðnason, 1. landsk. þm.

43. Sigurður E. Hlíðar, þm. Ak.

44. Sigurður Kristjánsson, 7. þm. Reykv.

45. Sigurður Thoroddsen, 11. landsk. þm.

46. Sigurður Þórðarson, 1. þm. Skagf.

47. Skúli Guðmundsson, þm. V.-Húnv.

48. Stefán Jóh. Stefánsson, 4. þm. Reykv.

49. Steingrímur Aðalsteinsson, 4. landsk. þm.

50. Sveinbjörn Högnason, þm. V.-Sk.

51. Þorsteinn Þorsteinsson, þm. Dal.

Voru framantaldir þingmenn allir á fundi, nema þm. Siglf. En ókominn var til þings:

Þórður Benediktsson, 2. landsk. þm.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sæta, kom ríkisstjóri, Sveinn Björnsson, inn í salinn og gekk til ræðustóls. Las hann upp ríkisstjórabréf, er stefnir saman Alþingi til reglulegs fundar fimmtudaginn 15. apríl 1943, dags. 13. apríl s. á.

Samkvæmt því lýsti ríkisstjóri yfir, að Alþingi væri sett, og mælti síðan:

„Ég bið alþingismenn og ríkisstjórn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum sínum.“

Þingheimur stóð upp, og 1. þm. S.-M. (IngP) mælti: „Lifi Ísland.“ Var tekið undir það með ferföldu húrrahrópi.

Ríkisstjóri kvaddi nú elzta þingmanninn, Ingvar Pálmason, til þess að stýra fundi, þar til kosinn hefði verið forseti sameinaðs þings. Gekk ríkisstjóri síðan út úr salnum.

Aldursforseti gekk þá til ræðustóls og tók við fundarstjórn. Kvaddi hann sér til aðstoðar sem fundarskrifara þá Skúla Guðmundsson, þm. V.-Húnv., og Sigurð Kristjánsson, 7. þm. Reykv.