05.11.1943
Sameinað þing: 27. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í B-deild Alþingistíðinda. (57)
27. mál, fjárlög 1944
Emil Jónsson:
Herra forseti. Ég hef borið fram örlitla brtt. á þskj. 314, XIX ásamt þremur öðrum þm. Brtt. er um það, að styrkur, sem veittur hefur verið landssambandi iðnaðarmanna og áður var 15 þús. kr., skuli hækkaður upp í 50 þús. kr., en til vara 40 þús. kr.
Landssamband iðnaðarmanna er fyrir iðnaðarstétt landsins eins og Fiskifélagið fyrir sjávarútveginn eða Búnaðarfélagið fyrir landbúnaðinn. En þessar stofnanir eru styrktar, — önnur með 340 þús. kr., hin með 550 þús. kr. Með brtt. okkar er því ísl. iðnaði ætlaður tæpur tíundi partur af því, sem landssamtök bænda fá. Ég ætla ekki að fara lengra í þeim samanburði, en ég vil benda á, að samkv. skýrslum um starfsemi landssambands iðnaðarmanna, sem útbúnar voru á síðasta iðnþingi, er augljóst, að landssambandið hefur t. d. með höndum heilmikil störf fyrir ríkisstj., sýslumenn og bæjarfógeta o. fl. 1942 bárust stj. landssambandsins á annað hundrað slík mál og hefur greitt úr flestum þeim erindum, þó að sum krefðust bæði tíma og fyrirhafnar. Auk þess er gefið út tímarit iðnaðarmanna, en útgáfunni hefur verið hagað svo, að halli hefur lítill orðið eða enginn undanfarin ár, eingöngu af því, að útgáfunni hefur verið haldið niðri kostnaðarins vegna. Æskilegt væri, að útgáfa ritsins væri fullkomnuð og að hægt væri að verja einhverju litlu af fé til hennar, en eins og sakir standa, er bæði halli af rekstri landssambandsins og tímaritsins síðast liðið ár, svo að fjárhagurinn er kominn í óefni, ef ekki verður úr bætt.
Skrifstofa sambandsins er rekin með eins litlum mannafla og frekast er fært. Fjárhagurinn hefur ekki leyft, að notaður væri nema hálfur starfstími þess manns, sem það hefur í þjónustu sinni. Hefur hann því orðið að leita sér starfs annars staðar jafnframt. Samt hefur fjárhagurinn ekki leyft kaup handa þessum hálfa manni, með mjög lítilfjörlegri aðstoð.
Ég vænti, að hv. d. sjái sér fært að hækka þennan lið, bæði til samræmis við aðrar stofnanir og eins til að brýnustu störf sambandsins verði leyst á viðunandi hátt.