29.11.1943
Efri deild: 57. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 486 í B-deild Alþingistíðinda. (610)
121. mál, lántaka fyrir ríkissjóð
Fjmrh. (Björn Ólafsson) :
Herra forseti. Ég kann ekki við annað en fylgja þessu frv. úr hlaði hér í hv. d. með nokkrum orðum. Annars býst ég við, að hv. þdm. sé kunnugt um efni frv. og hver rök liggja til grundvallar fyrir flutningi þess. Það er flutt í því skyni, að hægt verði að greiða nokkur erlend lán, sem falla í gjalddaga á næstu tveimur árum. Ríkisstj. telur rétt að færa þessi lán inn í landið, ef þess er nokkur kostur, og ég hygg, að eins og nú horfir við um fjárráð hér á landi, þá ættu ekki að vera erfiðleikar á öflun nægilegs lánsfjár hérlendis.
Frv. þetta var til athugunar í fjhn. Nd. og hlaut þar einróma meðmæli um, að það mætti ná fram að ganga, og vænti ég, að svo verði einnig hér í þessari hv. deild.