06.09.1943
Efri deild: 9. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 487 í B-deild Alþingistíðinda. (619)
24. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Forsrh. (Björn Þórðarson):
Herra forseti. Ég stend hér upp vegna þess, að hæstv. fjmrh. er bundinn við umr. í Nd. Frv. þetta var lagt fyrir síðasta þ. að því áliðnu og var vísað til hv. fjhn., en n. vannst ekki tími til að skila áliti. Í frv., eins og það liggur nú fyrir, er vísað til athugasemdar, sem fylgdi frv., eins og það var, er það var lagt fram á síðasta þ., og vil ég nú stytta mál mitt með því að vísa til hennar.
Ríkisstj. þótti einsætt að taka frv. upp aftur og leggja það fyrir þetta þ. Frv. er fjárhagsmál allmikið, og er að sjálfsögðu bezt að skoða það í sambandi við væntanlegt launafrv., þegar að því kemur.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta mál fleiri orð, en leyfi mér að óska þess, að því verði að umr. lokinni vísað til hv. fjhn. eins og áður.