16.12.1943
Neðri deild: 65. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (646)

24. mál, lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Ásgeir Ásgeirsson:

Það er hvort tveggja, að þetta ákvæði, sem hér er komin fram till. um, hefur ekki getað fengið næga athugun í n. og ekki verið leitað til tryggingafræðings um það, sem aths. hefur komið fram um, og eins hitt, að hverju máli, sem flækt er á milli d. nú á þessum síðustu starfsdögum þingsins, er hætta búin, og segi ég af þessum ástæðum nei.