06.09.1943
Efri deild: 9. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 503 í B-deild Alþingistíðinda. (651)

25. mál, lífeyrissjóður barnakennara

Forsrh. (Björn Þórðarson):

Herra forseti. Ég vil algerlega vísa til þeirra orða, sem ég lét fylgja frv. því, sem var til umr. næst á undan (frv. um lífeyrissjóð starfsmanna ríkissjóðs), því að hér stendur alveg eins á. Ég vil því líka leyfa mér að óska þess um þetta frv., að því verði vísað til hv. fjhn.umr. lokinni.