19.11.1943
Neðri deild: 50. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 516 í B-deild Alþingistíðinda. (681)

154. mál, olíugeymar o.fl.

Forseti (EmJ) :

Það er svo til ætlazt, að fundi verði brátt lokið, en óskir hafa borizt um, að málinu verði lokið nú á þessum fundi. Ef ekki væri um langar umr. að gera, gæti ég orðið við þeim óskum, en annars mundi umr. standa svo langt fram á fundartíma sameinaðs Alþingis, að ekki væri við unandi.