15.12.1943
Efri deild: 66. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (736)

154. mál, olíugeymar o.fl.

Forseti (StgrA):

Í sambandi við þessa fyrirspurn skal ég upplýsa það, að þetta mál var ekki tekið á dagskrá vegna þess, að hæstv. atvmrh. bað um, að það yrði ekki gert að svo stöddu. Sömuleiðis hefur það áður verið tekið af dagskrá eftir beiðni hans.