05.11.1943
Sameinað þing: 27. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
27. mál, fjárlög 1944
Forseti (GSv):
Ég skal geta þess, að mér er tjáð, að á brtt. þskj. 348 hafi af vangá fallið niður eitt nafn undir II. lið, þar sem talað er um viðbótarfjárveitingu á styrk þessa árs til nokkurra manna, og er það nafn Gunnars Gunnarssonar, sem á að koma á eftir lið 5, og þar eiga að standa við nafnið 2000 kr. Nú er komin fram brtt. um þetta, sem ég verð að bera undir atkv. forms vegna. Brtt. er of seint fram komin og skrifleg, og verður að leita tvöfaldra afbrigða fyrir henni.