21.04.1943
Efri deild: 6. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 573 í B-deild Alþingistíðinda. (778)

12. mál, bannsvæði herstjórnar

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Ég lít svo á, að hver sá ísl. maður, sem bíður tjón vegna hernaðaraðgerða hér, eigi rétt á bótum, og eins og ég sagði, skal það verða tekið til rækilegrar yfirvegunar og mats, hversu fara megi um bætur til þeirra, sem búa í nábýli þessa bannsvæðis eins og annarra, þar sem svipað stendur á.