07.10.1943
Efri deild: 30. fundur, 62. löggjafarþing.
Sjá dálk 577 í B-deild Alþingistíðinda. (812)

54. mál, afmáning veðskuldbindinga úr veðmálabókum

Frsm. (Lárus Jóhannesson) :

Ég vil taka það fram út af fyrirspurn hv. þm. Dal., að engin athugun hefur átt sér stað um það, hve margir hafa lent í þessum drætti. Mál þetta er flutt samkvæmt beiðni form. félags héraðsdómara, og var fullyrðing hans tekin trúanleg og því ekki fengizt um að rannsaka þetta atriði nánar.